So hypnotic...!
RSS tengill
13.05.2006 12:08:12 / Gulla

R.I.P.

Við kindurnar ætlum að opna nýja síðu vegna tæknilegra örðuleika á þessari síðu (thanks to Sunny, hehe ;).  Þessi síðan er búin að vera í rugli síðan í haust þannig að við ákváðum loksins er flytja okkur yfir á annanð heimilisfang..

 

http://blog.central.is/las_gellas


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 01:24:27 / Sara

Andlaus.... eða vitlaus!!!???

Jæja tvö búin.... and another two to go! Annars held ég án djóks að ég fari bráðum að skæla ég er so tenz yfir þessum helvxxxx prófum.... :cry: Og til að bæta gráu ofaná svart er ég greinilega e-ð mis, þar sem ég næ aldrei að klára á tilsettum tíma..... Birna kom einmitt með ágætis sjúkdómsgreiningu á þetta vandamál mitt um daginn.... en skv. henni er ég s.s. með “próftrega:$ En hann lýsir sér þannig að í prófi tekur tíminn að líða helmingi hraðar hjá manni heldur en hjá öllum öðrum, sem leiðir að lokum til þess að mar situr einn eftir í stofunni ásamt einhverri krumpaðri, fúlli kjellingu sem er sífellt að líta á úrið sitt og endar með því að rífa prófið úr höndunum á manni, þar sem mar situr í sakleysi sínu, bullandi sveittur yfir e-um akademískum pælingum og er ekki nema rétt rúmlega hálfnaður.... :evil:  Þetta er reyndar ekki fullkomlega viðurkenndur kvilli í samfélaginu ennþá.... en ég ætla mér að breyta því.... ;) Héðan í frá mun ég s.s. fórna öllum mínum tíma og mætti fyrir viðurkenningu hins æðra valds á tilvist þessa sjúkdóms og gera hann að mínu helsta baráttumáli :haha::haha::haha: 

Jessssss...... einhver prófgalsi komin í mína 8)

Tók annars eitt stykki sona eldhressan stressfýling á idda í prófinu í dag.... allan tíman að huxa hversu treggáfuð ég væri nú! :lol: Ekki samt haldað ég sé bara búnað verað sluggsast e-ð.... Er alveg búnað vera temmilega dúleg sona í bland við stress- og/eða kæruleysisköstin.... Undanförnum vikum hefur einmitt verið eytt í afar “hressilegum” stemmara á Hlöðunni, með tilheyrandi bílastæðaskorti, vöðvabólgu, þunglyndi og loftleysi.... En mín mun s.s. halda til þar næstu vikuna.... á meðan þið ónytjungarnir liggið í sólbaði.... :S

Jæja, ætla ekki að þreyta ykkur lengur á pirringnum í mér....  enn ákvað að láta einn tilgangslausan fróðleiksmola fylgja hérna með sona til gamans.... ;)

Til er sjúkdómur sem nefnist telephilia og lýsir sér sem sjúkleg löngun í að birtast í sjónvarpi þrátt fyrir algert hæfileikaleysi. Þessi svokallaða röskun háir sérstaklega Bandaríkjamönnum en svo virðist vera sem þetta sé einnig farið að gera vart við sig meðal ákveðins hóps Íslendinga.....

 

Hmmm....nei, þú segir ekki..... það er þó ekki verið að tala um hnakkana!!?? (*pæling*)




» 5 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 19:59:00 / Gulla

'Alegg!! hvað er það

'Eg rændi þessu af e-i síðu, takk fyrir það 8) Mér fannst þetta bara svo rosalega sniðugt :)

Veldu mánuðinn sem þú fæddist-
Janúar- Ég setti G streing á
Febrúar- Ég ældi uppí
Mars- Ég henti táragasi á
Apríl- Ég opnaði rassinn fyrir framan
Maí- Ég setti tippið mitt í
Júní- Ég sparkaði í
Julí- Ég öskraði á
Ágúst- Ég stakk fingrinum í
September- Ég fékk niðurgang á
Október- Ég bitchslappaði
Nóvember- Ég saug
Desember-Ég afmeyjaði

Veldu núna afmælisdaginn þinn-
1. Hlýrabol
2. Vélbyssuhreiður
3. Frumkvöðul
4. Kvótakóng
5. Læknanema
6. Opinberan starfsmann
7. Rafsegulsvið
8. Gyllinæð
9. Fullvaxið tré
10. Vanþroska stelpu
11. Queens of the stone age
12. Handsprengju
13. Refaunga
14. Hlutabréf
15. Kippu
16. Kóalabjörn
17. besta vin ömmu
18. Kisuna
19. Krabbamein
20. Ögmund Jónasson
21. Strætisvagnabílstjóra
22. Gangavörð
23. Pabba vinar míns
24. Fatlaðan einstakling
25. Barn
26. Halla Æsta
27. Hárkollu
28. Vöfludeig
29. Breiðablik
30. Alþingismann
31. Reiðhjól

Veldu Þriðja stafinn í föðurnafninu þínu –
A- Af því að ég var með háhyrning á heilanum
B- Af því að ég fermdist í engum nærbuxum.
D- Af því að ég datt í hver þegar ég var lítill.
E- Af því að Riddarinn hætti með könnutilboðið.
F- Af því að ég fékk lakk í jólagjöf..
G- Af því ég barnaði feminista.
H- Af því að ég sá fálka eignast afkvæmi.
I- Af því að ég sá Ásgeir Kolbeins í sundi.
J- Af því að ég lenti í keðjuverkun á pizzastað.
K- Af því mér líður vel í kringum hafmeyjur.
L- Af því að Bubbi Byggir er búinn að fitna.
M- Af því ég var nýbúin(n) að fá hundaofnæmi
N- Af því ég var misnotuð/aður af gæludýri
O- Af því að bróðir minn er verkfræðingur.
P- Af því að mamma og pabbi eru alltaf nakin.
R- Af því að ég kom að bílslysi.
S- Af því að Bubbi Byggir er búinn að fitna.
T- Af því að vinur minn er hommi.
U- Af því að ég fékk hlutverk í klámmynd.
V- Af því að ég fór til spákonu.
Y- Af því að ég fékk verðbólgu í löppina.
Ö- Af því að ég sá jólasveininn í driveby.

'Eg fékk: 'Eg afmeyjaði gangavörð af því að Bubbi byggir er búin að fitna :haha:

Endilega komentið og segi mér ykkar útkomu


» 15 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 12:17:19 / Gulla

Ha ég! ekki satt

Hallóhallóhalló

Vá! það er svo langt á milli færsla hjá mér að ég gleymi alltaf hvernig á að gera þetta. Eins og margir vita þá fara ég og tölvur ekki saman, hel%#& færslan hverfur alltaf og ég enda alltaf með að skrifa hana þrisvar og gefst síðan upp:klikk:.  Og það þýðir ekkert að segja mér að copy-a og paste-a, enda er ég svo þrjósk, en Sunna er sko margsinnis búin að reyna að segja mér að gera það. Dosen't work.

       Jæja ætla að segja ykkur svona í stuttu máli hvað ég er búin að vera að gera upp á síðkastið:

* Fór á árshátíð 22.apríl hjá 'Itr. Það var svosem ágætt, ekkert æðigæði. En auðvitað er alltaf gaman að hitta alla í góðum fíling.  Það kom mér ekkert smá á óvart hversu marga ég þekkti þarna, enda voru þetta allir sem vinna hjá 'Itr, sundlaugarnar, félagsmiðstöðvarnar og frístundaheimilinn + yfirmennirnir. Hitti meiraðsegja hana Sunnu mína, og hún var með þessa flottu kúlu knúsíknús.:P En besta var að ég gerði engan skandal á þessari árshátíð, jippi jej

* 'Eg fór áðan niður á skrifstofu reykjavíkurborgar og var að skrifa undir starfsamning. Jepp konan verður flokkstjóri yfir 13 ára krökkum í sumar. Sjáið þið ekki mig í anda að ráðgast með e-a litla unga, híhí. :haha::haha:  Annars er ég frekar stressuð, veit ekki alveg afhverju:$  Fer samt á e-ð 2ja vikna undirbúningsnámskeið og kannski verðu mér kennt að nota svipuna þar..uuu hvaða svipu..hallóó´!!!!

* Síðan var ég að sækja um í kennó, núna er bara að bíða og sjá hvort ég komist inn eða ekki, jæks..

Lag dagsins: Lonely day með System of a down


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 23:48:06 / Sara

Girls just wanna have fun....

Já, góðan daginn!!! Ég er gjörsamlega að fara yfir um.... Alltof mikið að gera í skólanum..... þar sem meirað segja ÉG er búnað vera alveg þokkalega “aktíf”.... en annars haft lítinn tíma til eiga mér e-ð líf þar fyrir utan..... 8|

Djíííí.... annars held ég að þetta sé fyrsta edrú-helgin mín á árinu.... Oki, kannski ekki alveg.... En leið allaveganna hálf kjánalega að verað farað sofa klukkan tíu á föstudagskvöldi.... það hefur bara ekki gerst síðan amma var ung:!::!::!:

Anyways.... langaði barað láta fólk vita að áður ástkær Hvebbinn minn er á hraðri leið til glötunar! Nú er ekki farandi þangað inn fyrir grunnskólakrökkum sem haldað þau séu orðin so obbolega fullorðin, ælandi útí öll horn og hrynjandi niður stiga.... svo ekki sé minnst á hnakkavæinguna sem á sér stað þarna inni.... En það er ekki nóg með það heldur eru dyraverðirnir nú farnir að taka uppá því að kýla okkur non-celebana, sem þurfum að dúsa í venjulegu röðinni í marga klst., í magann (og *btw þá gera þeir engan greinamunur á því hvort þú ert strákur eða stelpa)...... Þetta þýðir að ég neyðist víst til að farað leita mér að nýju lögheimili um helgar..... 8) E-r uppástungur???? 

Jæja, elskurnar mínar.... hef eila ekkert meirað segja í bili.... Farið bara varlega í súkkulaðiátinu um páskana og passið ykkur á páskaungunum þeir gætu verið með fuglaflensu.....:haha::haha::haha: 


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 16:19:39 / Sara

Hvað varð um Einar Áskel!!??

Ég veit ekki af hverju enn uppá síðkastið hefur spunnist upp sú kjaftasaga að ég sé þekkt fyrir að vera fylliraftur mikill og djammglöð með eindæmum.... Ég vil nota tækifærið og leiðrétta hér með þennan hvimleiða misskilning. Ég er og hef alla tíð verið mikil bindindis manneskja, sem snertir hvorki við áfengi né tóbaki.... og er þ.a.l. alls ekkert fyrir að “skella mér á djammið” (eins og sumir vilja meina....). Hins vegar eyði ég flestum mínum laugardagskvöldum í góðra vina hópi, elliærra kunningja minna ofan af Elliheimilinu Grund, þar sem við hittumst reglulega í Vinabæ og spilum bingó.... Svo eru jafnvel gömlu dansarnir stignir eftirá ef vel liggur á fólki.....

Já, já.... einmitt..... skál fyrir því......  :haha::haha::haha:

Enn talandi um gamalmenni.... Hvað er málið með alla þessa ellismelli útí umferðinni!!?? .....sem *btw eru líklegri til að hrökkva upp af undir stýri áður enn þeir uppgötva bensíngjöfina og 2.gír.....:!::!::!: So eru þessir menn (...eða konur) gæddir einstökum radar-hæfileikum, sem gera það að verkum að þeir eru ALLTAF fyrir framan mann þegar mar er að flýta sér sem mest.... Við Birna lentum einmitt á eftir einum sona um daginn, og vorum vonum orðnar mjög pirraðar á “afa-gamla” ....vorum meirað segja farnar að íhuga það alvarlega að vera nú so “elskulegar”að bjóðast hreinlega til að skuttlast bara með kauða beint í kirkjugarðinn og spara honum þar með ómakið....8) Annars hef ég ekkert útá gamalmenni að setja.... þetta er flest allt indælis fólk sem hefur lifað tímana tvenna, svo að við þumalputtakynslóðin gætum haft það kósý.... Enn mér finnst barað fólk sem kann ekki að keyra eigi að vera heima hjá sér.... nú eða nýta sér þessa “afbragðs strætisvagnaþjónustu” sem Reykjavík hefur uppá að bjóða.....  :S Og hana nú.... sagði hænan og lagðist á bakið.....;)

Þið ykkar sem þekkið mig e-ð að ráði hafið væntanlega nógu mikið vit í kollinum til að taka mig ekki alvarlega...... Enn við hin ykkar sem af e-um óskiljanlegum ástæðum eruð að lesa þennan pistil, vil ég segja þetta: það erum meiri líkur á því að þið rekist á Gillz ó-tanaðan og stiknandi af fjósafýlu, í lopapeysu niðrí bæ að skrallast, enn á því að ég sé actually að meina það sem ég segi.....:D

Signed: www.spassakast.is


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 16:41:42 / Sara

Shit, hvað mig langar í nammi.......

Jæja, hvað er uppi??? Gaman að sjá að það eru fleiri en bara ég farnir að tjá sig á þessu blessaða bloggi :) Held að málið sé alveg að halda þessum dugnaði áfram, stelpur.....!!!!

Hmmm..... hef annars lítið að segja..... Bara búnað vera í rólegheitum þó mar hafi nú skellt sér með stelpunum (Birnu, Karó o.fl.) í Singstar um síðustu helgi..... og *btw rúllað upp annars ágætri keppni á milli okkar stelpnanna (no offence stelpur, þið voruð frábærar!!! *ást*) ;) Hehe

Svo á að skella sér á skrallið á morgunn líka, stefnan tekin á mjög so rokkaða tónleika á Nasa..... ætlað taka Sunnuna með mér, til halds og trausts.... 8) Hihihi

Úfffff...... ég veitiggi hvort að ég er ein um þetta, enn ég er gjörsamlega að missa mig yfir LOST þessa dagana..... (eins og alla aðra daga, reyndar.....). Í alvöru, mín var nú eila bara sár, reið og hissa á mánudaginn síðasta þegar þátturinn kláraðist...... Ég huxað ég myndi í alvöru selja ömmu mína fyrir þessa þætti..... Oki, kannski ekki alveg seljana (ég á rosalega góða ömmu;)) ..... enn ég væri pottþétt til í að leigja einhverjum hana..... :haha: Spurning um að vera ekki alveg sona sorglega háður e-um sjónvarpsþætti.....

Well..... Peace out......


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 21:40:19 / Sara

Þa' er ógilla töff að verá leikskóla, skilurru....!!!!!

Æi, fyrst mar er nú að þessu á annað borð, verður mar nú að leyfa þessum að fljóta með..... Algjör snúllurass..... og með Silvíustælana á hreinu.....:!::!::!:

http://www.geimur.is/link.php?id=31441


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 15:56:41 / Sara

Sex bomb, sex bomb..... Ur my sex bomb....

Vááááááá..... þið verðið að horfa á þetta..... Hvaða kvennmanni dreymir ekki um að vera með sona gaur.....!!??? ;)Hehe 

http://www.mojoflix.com/Video/Evgeni-Plushenko-Sex-Bomb.html


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 10:59:37 / Gulla

Talandi um veðrið...eða ekki!!

Eruð þið ekki að grínast með veðrið um helgina, hvaðan kom það eiginlega. Eina minútu var það brjálað og hina gott.  Það var nánast búið að koma ég veg fyrir að ég færi í bæinn á laugadags nóttina en sem betur fer varð það bara ótrúlega gott í kringum eitt.  Um kvöldið hittumst við frænkurnar, þ.e. ég, Eydís og Dagný.  Eins og alltaf hringsnerist hún Eydís í kringum okkur, maður var nú komin með hálfgert samviskubit. 'Eg meina hún eldaði fyrir konurnar og síðan blandað hún meistara kokteila allt kvöldið, loks toppaði hún þetta með því að gefa okkur eftirrétt, namminamm:D  Eg verð nú bara að taka af ofan fyrir henni, enda er hún alveg frábær kokkur og kvöldið var frábært. . .'Eg var nú orðin soldið þreytt um kvöldið (umm kemur á óvart) en ég var dreginn í bæinn af stelpunum og ég sé sko ekki eftir því.  Það voru bara ótrúlega margir í bænum, kom bara á óvart enda leit veðrið nú ekki vel út. Staðirnir voru gjörsamlega troðnir og eins og alltaf þá endaði ég á hverfiz allt kvöldið. Þar var nú óvenjumikið að út úr drukknu fólk (eða kannski var ég bara ekki búin að drekka nóg, maður spyr sig..?). Og vá !! hvað þar var mikið af fjallmyndarlegu kk 8) En gellan stóðst nú alveg freistinguna enda hálf bundin þessa daganna.  Hins vegar var Sara hálf svekkt :^) þegar ég hitti hana fyrir utan 11 þegar ég var á leiðinni heim, enda var hún í leit af ferskri bráð.  'A endanum ákvað hún bara að koma með okkar heim, hún gaf allt upp á bátinn,  Samt er ég viss um að hún gat bara ekki verið án Gullu sinnar í bænum, híhí:haha:

P.S. One tree hill er byrjað aftur, jippínjejj :lol: Stelpan er ekkert smá ánægð enda massa þættir hér á ferð


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 18:27:08 / Gulla

HAHAHAHAH

Þið verðið að kíkja á þetta, ég dó úr hlátri og ég er viss um að þið gerir það líka. . . Talandi um hund sem ögrar sjálfum sér:haha:

http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208&f_id=1378


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 12:36:19 / SunSun

I dont want no scrub...


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 16:13:46 / Sara

HA, HA, HA....

Æ, þetta er ekkert smá krúttulegt og fyndið..... og kemur manni definitely til að hlægja með..... varð barað deila þessu með ykkur.... Enjoy!!!!!!!

  http://b2.is/?sida=tengill&id=148862


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 18:58:08 / Sara

Hmmm..... hvað er í gangi......????

Jæja, að vanda er ekkert að gerast á þessu blessaða bloggi...... En mig langaði að láta ykkur “fallega” fólkið sem droppið reglulega inn á þessa síðu vita að www.123.is/las_gellas er ekki alveg að gera sig (eins og þið kannski hafið nú þegar tekið eftir), þannig að við höldum okkur bara við þessa í bili.

 

 

 

 

Anyways..... þessa daganna er mar allur að koma til í djamminu, eftir smá pásu (eina helgi8)). Núna næst er það Vísó á föstudaginn..... það verður nú örugglega e-ð skrautlegt (ef ég þekki mína rétt ;)). En ég komst einmitt að því í síðustu vísindaferð að frítt áfengi er ekki alltaf jafn æðislegt og það hljómar :$..... vonandi bara að mar hafi nú lært e-ð síðan þá og kunni sig næst (þó ég stórefist um það).....  hehe  

Enn út í allt annað......Hvernig lýst ykkur annars á tilvonandi Eurovisionfarann okkar..... hana Silvíu Nótt.....?  Ég verð að segja að mér finnst hún bara snillingur..... Þetta lag er ÆÐI..... Alveg efni í næsta “Gleðibanka”, sko..... Hún á eftir að rúlla þessari, annars tilbreytingasnauðu keppni, upp...... Áfram Silvía:!::!::!: Átti einmitt afar skondið samtal við móður mína (sem btw er Silvíu-fan NR.1) ekki alls fyrir löngu:

 

 

Mamma: Veistu hver er hommi?

Ég (ýkt happy yfir að vera u.þ.b. að komast í e-ð feitt slúður): Nei, hver......???Mamma: Rúnar Freyr, kærastinn hennar Selmu Björns......

Ég (eitt stórt spurningarmerki í framan): HAAAAA......?????????

Mamma: Já... æ, þú veist... Hommi & Nammi.....  með Silvíu Nótt.....

HA, HA, HA........:haha: :haha::haha:   

 

Lag mánaðarins (....og gott betur): Til hamingju Ísland” með Silvíu Nótt....

*Veit iggi með ykkur hin.... en mér finnst alveg vera LÖNGU kominn tími á að hinar stúlkukindurnar hrauni inn eins og einni slúður/bumbu/eða bara hvað sem er –sögu...... svona á meðan við erum nú enn öll ung!!!!!!!

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 10:09:42 / Sara

Hætt í bloggstrike-i.....

Þar sem mar er ekkert búnað blogga að viti á nýju ári ákvað ég að birta hérna smá samantekt á því sem stóð uppúr á árinu 2005......

Mamma ársins: Katrín

Skussi ársins: Sara

Drop out ársins: Sunna og Gulla

Drykkur ársins: töfratyppi

Skemmtistaður ársins: Hvebbinn

Vinnustaður ársins: Pizza 67 Austurveri

Uppgötvun ársins: Smirnoff Apple Twist

DRASL ársins: DV

Tilgangsleysi ársins: kærastar :$

ÓMISSANDI ársins: LOST

Iðrun ársins: að hafa sleppt úr einum föstudegi á djamminu á nánast 3 mánaða straight fyllerýi 8)

 

 

 

 

Annars hefur lítið krassandi gerst í kindahópnum uppá síðkastið, Gulla er algjörlega hugmyndasnauð um hvað hún á að aðhafast þessa dagana, Sunna er áfram í ruglinu og ég er að skussast í skólanum-alveg minnst duglegust, sko. Það eina sem er að virka þokkalega vel hjá okkur og við gefum okkur 100% í er DjAmMiÐ!!!!!!!!! En við Gulla tókum einmitt þá skyndiákvörðun á laugardagskvöldið að skella oss uppí bústað og taka ærlega á honum stóra okkar í drykkjunni. Við erum að tala um að við vorum 2 kvk vs./ 6 kk! Hmmmmmmm.......... frekar dubious (en ekkert syndsamlegt eða ókristilegt samt, sko ;)). Það var reyndar rugl-færð á leiðinni uppeftir; rok, skafrenningur og brjáluð-hálka... en við komumst svona “nokkurnveginn” klakklaust á leiðarenda :$ (... reyndar með smá hjálp hraustra, íslenskra karlmanna 8)). En þetta var ævintýri útaf fyrir sig :haha:.

 

Lag vikunnar:  Mercedes Benz með Janis Joplin.


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012
Leitarbox